Hvað er raftónlist? Er hægt að gera tónlist án þess að snerta hljóðfæri? Hvað þýðir analog, digital og midi? Hvernig flytja raftónlistarmenn tónlistina sína á tónleikum? Er hægt að nota hvaða hljóð sem er í raftónlist?
Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og hlustum á góða raftónlist.
Sérfræðingur þáttarins er Daði Freyr Pétursson, raftónlistarmaður
Hugleiðingar um raftónlist frá tónmenntanemendum í Ísakskóla.
Þátturinn var áður á dagskrá í janúar 2019.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir