Um þessar mundir eru rakarastofur á höfuðborgarsvæðinu lokaðar vegna varúðarráðstafana út af Covid-19-veirunni. Það er hins vegar ekki bannað að hlusta á tónlist sem tengist rakstri og rökurum, en þar er af nógu að taka. Frægasti rakari tónbókmenntanna er vafalaust rakarinn í Sevilla, aðalpersónan í samnefndri gamanóperu eftir Gioacchino Rossini. En það eru til óperur um fleiri rakara, til dæmis samdi Peter Cornelius óperuna „Rakarinn í Bagdad“ og Francisco Asenjo Barbieri samdi óperuna „Litli rakarinn í Lavapies“, en hún gerist í Madrid. Af hljóðfæraverkum má nefna rakhnífskvartettinn, en einn af kvartettum Josefs Haydns hefur þetta viðurnefni. Heitið „rakarakvartett“ er hins vegar haft um söngkvartetta sem syngja margraddað í sérstökum stíl. Öll þessi tónlist kemur við sögu í þættinum. Umsjón: Una Margrét Jónsdóotir.