Á tónsviðinu

Ralph Vauhan Williams


Listen Later

Breski tónsmiðurinn Ralph Vaughan Williams fæddist árið 1872 og lést 1958. Hann var mikill áhugamaður um ensk þjóðlög, safnaði þeim og útsetti. Það voru ekki síst jólalög sem vöktu áhuga hans, hann útsetti mörg þeirra og fléttaði þau inn í jólatónverk. Í þættinum verður fluttur ballettinn „On Christmas Night" (Á jólanótt) sem Vaughan Williams samdi árið 1926 og byggði á hinu fræga Jólaævintýri Charles Dickens um nirfilinn Scrooge. Einnig verða flutt atriði úr helgileiknum „The First Nowell" sem Vaughan Williams byggði á gömlum jólalögum. Hann var langt kominn með þetta verk þegar hann lést 26. ágúst 1958. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV