Árið 1904 kynntist franska tónskáldið Maurice Ravel pólsku hjónunum Cipa og Idu , sem búsett voru í París. Þau urðu nánir vinir Ravels og hann tileinkaði þeim sónatínu fyrir píanó sem hann samdi á árunum 1903-5. Þetta verk er leikið í þættinum og einnig tónverkið „Gæsamamma“ sem Ravel byggði á þekktum ævintýrum og tilenkaði börnum Godebski-hjónanna, Mimi og Jean. Þau voru þá 11 og 9 ára gömul og Mimi sagði síðar að þau hefðu verið of ung til þess að kunna að meta tileinkunina, þau hefðu aðeins haft áhyggjur af því að það yrði mikil vinna að æfa verkið sem var samið fyrir píanó fjórhent. Lesari er Halla Harðardóttir og umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.