Kynstrin öll

Renata og Ari


Listen Later

Þátturinn er að þessu sinni helgaður baráttu fólks sem stundar kynlífsvinnu fyrir afglæpavæðingu starfs síns. Innreið vefsíðunnar OnlyFans á íslenskan markað hefur, bara á þessu ári, haft mikil áhrif á umræðuna um framleiðslu klámefnis og tæknin virðist að einhverju leyti hafa tekið völdin úr höndum moldríkra framleiðenda og fært þau til fólksins sem nú framleiðir, leikstýrir og leikur sjálft í efninu á sinni prívat síðu. Samhliða þessari umræðu verður æ háværara ákall um að taka upp umræðuna um lagaumhverfi kynlífsvinnu og breyta löggjöfinni í átt sem sumum þykir manneskjulegri, öruggari og heillavænlegri.
Gestir þáttarins eru Renata Arnórsdóttir og Ari.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Kynstrin öllBy RÚV