Á tónsviðinu

Renée Fleming og Joyce DiDonato


Listen Later

Á tveimur undanförnum árum, 2021 og 2022, hafa komið út tvær geislaplötur, önnur með sópransöngkonunni Renée Fleming og hin með mezzósópransöngkonunni Joyce DiDonato, og viðfangsefni beggja hljómdiskanna er það sama: náttúran og umgengni mannfólksins við hana. Tónlistin er eftir marga höfunda og má þar meðal annars finna 17. aldar tónskáldið Francesco Cavalli, 19. aldar tónskáldið Franz Liszt og 20. aldar tónskáldið Aaron Copland auk þess sem frumflutt eru ný tónverk eftir Rachel Portman og Kevin Puts. En öll söngverkin snúast að einhverju leyti um náttúruna. Fluttar verða hljóðritanir af þessum geislaplötum og einnig koma við sögu aðrar tónsmíðar sem tengjast náttúrunni svo sem „Sólskinsskúrin“ eftir Árna Thorsteinsson og „Þögnuðuholt“ eftir Hauk Tómasson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV