Reykjavíkurnætur er heiti á þremur heimildaþáttum þar sem Sigyn Blöndal kynnir nokkra af nátthröfnum höfuðborgarinnar. Sumir vinna vaktavinnu, aðrir eyða nóttunum í að leita að Pokemon og enn aðrir upplifa rómantískar stundir um borð í hvalveiðibát. Margir halda fast í nóttina, aðrir fagna morgunbirtunni. Í þessum fyrsta þætti förum við á flakk á miðvikudegi og fimmtudegi og könnum lífið í bænum.
Viðmælendur: Gunnar Þorgeir Bjarnason, Haukur Heiðar Hauksson, Árni Þórarinsson, Hallgerður Hallgrímsdóttir og Bjarni Þór Kristjánsson.
Umsjón: Sigyn Blöndal.