Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Freydís Helgadóttir, 11 ára nemandi í Fossvogsskóla, færslu úr fundagerðabók barnastúkunnar Unnar. Barnastúkan Unnur var stofnuð 1. mars 1905 og var um tíma fjölmennasta barnastúkan hér á landi en þar var meðal annars leiklistarstarfsemi og blaðaútgáfa. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.