Tónskáldið Sebastian Iradier fæddist í Baskahéruðum Spánar árið 1809 og lést 1865. Hann er einkum þekktur fyrir að hafa samið lagið „La Paloma". Hitt vita færri að hann er einnig höfundur hinnar frægu Habaneru sem sungin er í óperunni „Carmen" eftir Georges Bizet. Þar sem óperan gerist á Spáni ætlaði Bizet að nota spænskt þjóðlag, en svo óheppilega vildi til að lagið sem hann valdi var ekki þjóðlag heldur sönglagið „El Arreglito" eftir Iradier. Hins vegar gerði Bizet smávegis breytingar á laginu svo að það fékk annan svip. Í þættinum verður „El Arreglito" flutt á undan Habanerunni úr „Carmen" svo að hlustendur geta borið þessar tvær gerðir lagsins saman. Lagið „La Paloma" verður einnig flutt í ýmsum myndum og sungin verða tvö önnur lög eftir Iradier. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.