Á þessu ári eru 100 ár frá því að hið vinsæla tónskáld Sigfús Halldórsson fæddist. Í tilefni af því hefur Ríkisútvarpið látið hljóðrita píanóverk sem Sigfús samdi 16 ára gamall árið 1936. Það er Anna Guðný Guðmundsdóttir sem leikur verkið „In memoriam“ sem Sigfús samdi til minningar um vinkonu sína, Kristjönu Bjarnadóttur, sem dó ung úr berklum. Verkið verður flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 8. október kl. 14.03 og í þættinum verður einnig fjallað um tónskáldaferil Sigfúsar og leikin verða þekkt lög eftir hann, eins og „Dagný“, „Tondeleyó“ og „Litla flugan“. Lengi vel mátti heita svo að allir Íslendingar kynnu „Litlu fluguna“, en hvernig skyldi það vera núna, árið 2020? Umsjónarmaður þáttarins „Á tónsviðinu“ fór niður í miðbæ Reykjavíkur og spurði fólk á öllum aldri hvort það þekkti „Litlu fluguna“. Útkomuna má heyra í þættinum. Einnig verða flutt brot úr útvarpsviðtölum við Sigfús. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhildur Ólafsdóttir.