
Sign up to save your podcasts
Or


Anna Margrét Gunnarsdóttir er skemmtileg og orðheppin kona sem vinnur sem verkefnastjóri hjá H&M Group Communications í Svíþjóð. Um þessar mundir eru hennar helstu áherslur að kynna fyrir neytendum þróun og aðgerðir innan H&M sem stuðla að umhverfisvænni framleiðslu og vistvænni tísku. Við áttum skemmtilegt spjall við Önnu þar sem við byrjum frá byrjuninni og förum yfir hennar vegferð, m.a um unglingsárin í Vesturbænum, skiptinám í Paragvæ, dansinn, stærðfræðióttann, búsetu á Norðurlöndunum og leiðina að draumastarfinu.
Við systur erum mættar aftur eftir stutta pásu. Hér spjöllum við um sögur á Reddit þar sem notendur spyrja "Am I the Asshole?". Fengum sendar sögur frá stóru systur okkar og fórum yfir þær á léttu nótunum.
Við systur förum yfir liðna viku og tölum svo um umræðuefni þáttarins: Borgarlínuna. Sóla vinnur hjá Strætó sem samgönguverkfræðingur og hefur unnið að Nýju leiðaneti Borgarlínunnar og Strætó. Sóla svarar spurningum frá Siggu varðandi Borgarlínuna og systurnar tala um Borgarlínuna á mannamáli. Létt og skemmtilegt spjall fyrir þá sem vilja vita meira um Borgarlínuna eða þá sem hafa gaman af þeim systrum.
Við systur fengum Ernu Héðinsdóttur í spjall til okkar. Ernu er margt til lista lagt, hún er 4 barna móðir með 5 háskólagráður og með réttindi til að kenna ólympískar lyftingar og crossfit. Hún greindist með vefjagigt árið 2008 og hefur seinustu ár verið að glíma við ofsaþreytu og verki. Hún endaði með kulnun fyrir nokkrum árum og hefur verið seinustu ár í endurhæfingarferli og hugað að heilsunni. Í því ferli kynntist hún sjósundi sem hefur gefið henni annað líf og minnkað verki til muna. Í dag fer hún reglulega í sjósund og er farin að kenna námskeið í sjósundi. Við tölum um sjósundið, endurhæfingarferlið og lífið.
Við systur spjöllum um Nýju stjórnarskrána, undirskriftarlistann og baráttuna sem er búin að eiga sér stað undanfarið í samfélaginu. Allir að kíkja á nystjornarskra.is
Sandra Mjöll er ung kona sem hefur afrekað markt á stuttri ævi. Sandra er doktor í lífeindafræði og í doktorsnámi sínu stundaði hún rannsóknir með góðu fólki á sviði stofnfrumulækninga sem stuðlaði að því að þróa tækni og aðferðir til að gera vísindamönnum kleift að rannsaka og rækta stofnfrumur án þess að nota dýrafurðir. Í kjölfarið á doktorsverkefninu sínu stofnaði hún fyrirtækið Platome Líftækni ásamt Dr. Ólafi Eysteini Sigurjónssyni. Fyrirtækið vann til fjölda verðlauna í nýsköpunarkeppnun og var valið sportafyrirtæki ársins 2017 af Viðskiptablaðinu.
Systurnar Sigga og Sóla fara um víðan völl og tala um ferðalög í Kína, Japan, Kóreu, Tælandi og víðar. Auðvitað koma einhver ferðaráð eins og við er að búast af þeim systrum,
Þegar þrengir að er gott að fá sparnaðarráð, en við systur ræddum einmitt ýmis sparnaðarráð í þessum þætti.
Við systur spjölluðum við Sigþrúði kórsystur okkar, en hún er jafnframt formaður í kórnum (Söngsveitin Fílharmónía). Sigþrúður hefur gert allskonar í gegnum ævina, er óhrædd við að taka að sér ábyrgðarhlutverk í félagsstörfum, afar orðheppin, fyndin og vinnur sem ritstýra hjá Forlaginu.
Við systur fórum saman í skiptinám árið 2013 til Japan, Kyoto. Við förum aðeins yfir dvölina og hvað við lærðum af henni.
From the publisher's feed