Kynstrin öll

Sigþrúður Guðmundsdóttir


Listen Later

Jólin nálgast og eftir innan við viku sitjum við flest með fjölskyldum okkar við jólaborðið, södd og sæl með tilhlökkun í maganum yfir því að sjá börnin opna gjafirnar. Fyrir einhverja hefur aðventan verið kvíðvænleg en allt kemur loks heim og saman á aðfangadagskvöldi, í friði og ró. Jólunum fylgja gjarnan bækur, konfekt, kertaljóst og hlýir sokkar. Allt það sem er best. En jólunum getur líka fylgt allt það sem er verst. Við upplifum þennan tíma öll misjafnt. Einhverjir sitja ekki rólegir á heimili sínu um jólin heldur í ókunnugu húsi að flýja aðstæður sem voru orðnar óbærilegar. Gestur þáttarins er Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfins. Hún hefur skipulagt ófá jól í Kvennaathvarfinu og veit því nákvæmega hvaða þarfir þarf að uppfylla hjá hópnum sem til athvarfsins leitar, á hátíð ljóss og friðar.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Kynstrin öllBy RÚV