Á þessu ári er liðin öld frá fæðingu Sigurveigar Hjaltested mezzósópransöngkonu, sem var ein af merkustu söngvurum Íslands á seinni hluta 20. aldar. Í tilefni af því verður þátturinn helgaður henni og fluttar hljóðritanir með söng hennar. Þar á meðal er hljóðritun frá sýningu Þjóðleikhússins árið 1960 á óperunni „Rigoletto" eftir Verdi, en þar fór Sigurveig með hlutverk Maddalenu og söng á móti hinum fræga sænska tenórsöngvara Nicolai Gedda. Einnig verður rætt við Ólaf Beintein Ólafsson, son Sigurveigar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Snorri Rafn Hallsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.