Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sinfónía nr. 1 – Halla Oddný ræðir við Högna Egilsson


Listen Later

Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins. Þessir spennandi  tónleikar í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru helgaðir nýrri sinfónískri tónlist Högna og mun hann einnig koma fram sjálfur með hljómsveitinni í sumum verkanna. Hljómsveitin hefur áður flutt tónlist Högna, meðal annars tekið upp tónlistina fyrir Netflix-sjónvarpsþáttaröðina Kötlu og verða tvö sinfónísk ljóð úr Kötlu flutt á tónleikunum. Ennfremur verða frumflutt verk sem samin eru sérstaklega í tilefni tónleikanna, þar á meðal er fyrsta sinfónía Högna, hans stærsta hljómsveitarverk til þessa.

Halla Oddný Magnúsdóttir ræðir hér við Högna um tónlist hans.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar ÍslandsBy Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra