Í þættinum í dag ætlum við að fræðast um 7 undur veraldar og skoða elsta listann um þessi furðulegu, jafnvel óskiljanlegu fyrirbæri. Listann gerði Antípatros frá Sídon á 2. öld f.Kr. Undrin eiga það sameiginlegt að eiga magnaða sögu og ætlum við að forvitnast aðeins um hvernig og af hverju þau voru gerð.