
Sign up to save your podcasts
Or


Fórum vel yfir landsleikinn beint eftir 5-0 sigur á Búlgaríu
Jóhann Berg fór á Old Trafford um liðna helgi þar sem hann sá líklega síðasta leik Michael Carrick með liðið. Við ræðum enska boltann vel, skoðum landsliðið og svo ítarlegt spjall um hlutverk umboðsmanna í heimi fótboltans.
Á Instagram síðu okkar er hægt að vinna áritaða treyju frá Bruno Fernandes sem hann notaði í 4-4 jafnteflinu gegn Aston Villa.
Jóhann Berg er eini Íslendingurinn sem hefur spilað í Sádí Arabíu. Ræðum þann hluta af ferlinum og svo hvernig það er að flýja stríð með fjölskylduna. Andri Lucas Guðjohnsen er svo í mjög áhugaverðu spjalli, er hann næsti íslendingurinn sem fer í ensku úrvalsdeildina?
Gylfi Þór mætir í þáttinn og fer yfir allt það helsta. Förum yfir ástandið hjá Manchester United, skoðum Liverpool og ræðum margt fleira. Þjálfaramálin á Íslandi aðeins skoðuð.
Alfreð Finnbogason er fyrsti gestur Sjöunnar, hann fer ítarlega yfir málin. Þá er farið yfir enska boltann og aðeins kíkt í þá Bestu.
Sjöan er í boði Lengjunnar, Peroni 0,0 prósent og Númereitt.is
Íslenskir landsliðsmenn gómaðir á barnum, Manchester City og stóri dómur JBG yfir því máli. AskBigBerg og fleira gott í þessum öðrum þætti af Sjöunni.
Fyrsti þáttur af Sjöunni - Jóhann Berg Guðmundsson hefur lagt skóna á hilluna. Jóhann mun í vetur fræða íslenskt knattspyrnuáhugafólk um leikinn sem allir elska. 102 landsleikir, spilaði á Íslandi, Hollandi, Englandi og í sandinum.
From the publisher's feed
Sjöan er fótboltahlaðvarp Jóhanns Berg Guðmundssonar og Harðar Snævars Jónssonar.
Jóhann Berg er fyrrum landsliðsmaður Íslands með yfir 100 A-leiki og hefur spilað meðal annars með AZ,…
Saman fara þeir yfir helstu deildir í evrópu sem og aðrar deildir sem stundum gleymast. Fá íslenska atvinnumenn til að útskýra sína deild, daglegt líf og það sem gerist á og utan vallar. Þegar það á við er stutt stopp heima: Besta deildin og landsliðið.
Nafnið kemur af númerinu 7 sem Jóhann Berg hefur borið í áratug. Hlaðvarpið er samt tvíeyki: Jói opnar dyrnar, Hörður heldur umræðunni skarpri.
Nýr þáttur vikulega á Spotify, Apple Podcasts og YouTube.