Á tónsviðinu

Sklidingavísa, fyrri þáttur


Listen Later

Orðið „skildingsvísa“ - „skillingsvise“ á dönsku og „skillingtryck“ á sænsku var fyrr á öldum notað um kvæði sem gefin voru út á einblöðungi eða tvíblöðungi og kostuðu einn til tvo skildinga. Flest voru kvæðin ætluð til söngs við eitthvert alþýðulag. Margar vinsælustu skildingsvísurnar voru sorglegar sögur um elskendur eða börn sem rötuðu í miklar raunir. Sumir af þessum söngvum voru þýddir yfir á íslensku og einnig voru ort íslensk kvæði í svipuðum stíl, en orðið „skildingsvísa“ var ekki notað yfir söngvana hér á landi. Fjallað er um skildingsvísur og sorgarsöngva í þættinum að þessu sinni og aftur eftir viku. Fyrri þátturinn verður helgaður sorgarsöngvum um börn, en þar má nefna norræna sönginn „I en sal på lasarettet“, ameríska sönginn „Come home, father“ og íslensku söngvana „Segðu mér söguna aftur“ og „Bergþórshvoll logandi blasir við sýn“. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Anna Marsibil Clausen og Kristján Guðjónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV