Í tilefni af degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, verða flutt lög við kvæði úr „Litlu skólaljóðunum" sem út komu 1969. Jóhannes úr Kötlum valdi ljóðin í bókina og er þar annars vegar um að ræða gömul íslensk þjóðkvæði, en hins vegar ljóð eftir samtímaskáld, höfunda 20. aldar. Þar sem bókin var ætluð börnum reyndi Jóhannes að velja ljóð sem höfðuðu til barna þótt þau væru flest ort með fullorðna í huga. Árið 1981 kom út nótnabókin „Ljóðakorn" með lögum Atla Heimis Sveinssonar við ljóð úr „Litlu skólaljóðunum" og verða mörg þeirra laga flutt í þættinum, en einnig lög eftir önnur tónskáld, svo sem Ingibjörgu Þorbergs, Sigursvein D. Kristinsson, Jórunni Viðar og Jón Ásgeirsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Anna Marsibil Clausen.