Sofum saman

Sofum saman: Leiðist að sofa


Listen Later

Þórgnýr Thoroddsen var vanur að fara seint að sofa áður en hann kynntist konunni sinni. Hann segir okkur aðferðir sem hann notar til að komast í svefnflæði.

Fannst tímaeyðsla að sofa

„Mér finnst ofsalega leiðinlegt að sofa. Allir þessir klukkutímar sem fara í þetta, maður getur nýtt þá í eitthvað annað. En ég sef alveg mína sjö, átta tíma á hverri nóttu og er alveg góður í því að sofa. En í svona tíu ár þá svaf ég ábyggilega ekki mikið meira en fjóra, fimm tíma á nóttu. Það var bara svo gaman. Það var alltaf eitthvað að gera. Og svo kynntist ég konunni minni og hún er kvöldsvæfasta manneskja allra tíma. Hvað var ég búinn að koma mér út í? Ég var bókstaflega að pæla í að hætta með henni vegna þess að ég bara meikaði þetta ekki. Klukkan tíu á kvöldin þá var hún bara byrjuð að geispa og sagðist ætla að fara að sofa. En eins og gerist þegar manni líkar við manneskju, þá byrjar maður að mætast í miðjunni og eftir því sem á leið færðist hennar svefntími fram yfir ellefu og minn færðist kannski nær miðnætti frá tvö.“ 

Rútína og litlir sigrar hjálpa

„Ég er 43 ára. Ég horfðist í augu við það að ef maður er ekki búinn að læra að stjórna sér aðeins, hafa einhverja smá stjórn á þessu og sætta sig við ákveðna rútínu, þó að það sé hundleiðinlegt, að þá þarf maður að fara að taka þetta aðeins alvarlega. Ef þú ert kominn yfir fertugt og getur ekki rútínur, þá þarftu að fara að æfa þig. Það eru hlutir sem eru svona besta mögulega aðferðarfræðin. Það eru litlir hlutir. Ef ég var duglegur í dag þá líður mér eins og ég megi fara að sofa í kvöld vegna þess að ég gerði eitthvað í dag. Og það fyrsta sem ég geri á hverjum einasta degi, og ég veit að ég hljóma eins og leiðinlegasta manneskja í veröldinni þegar ég segi þetta, en ég bý um rúmið mitt. Og það tók mig ábyggilega 30 ár að fatta þetta. Og ég setti mér þá reglu að gera þrjá góða hluti á hverjum degi. Og fyrsti hlutinn er búinn vegna þess að ég bý alltaf um rúmið. Þá eru bara tveir eftir. Hverjir eru þeir? Koma sér í vinnuna? Eða fara í apótekið? Eða bara eitthvað. Það skiptir ekki máli hvað það er. En þegar þú er búinn með þessa þrjá hluti og klukkan er enn þá bara hálf tíu, þá er maður bara, ok ég get gert einn hlut í viðbót í dag. Ef maður hugsar þetta svona, skref fyrir skref, þá gerir maður á endanum miklu fleiri hluti. Og ef maður gerir þrjá hluti á hverjum einasta degi, það eru 365 dagar á ári, eru það meira en þúsund góðir hlutir á ári sem þú gerir. Og það er hvetjandi. Og þá hugsar heilinn í þér, geggjað, ég er búinn að vera duglegur í dag, þegar þú kannski raunverulega varst ekki duglegur. En þetta er svona lítil hvít lygi sem virkar og gerir mig duglegri og afslappaðri en það hjálpar mér að sofa.“ 

Einbeittu þér að verknum

Þórgnýr fór í stóra aðgerð þar sem annar fóturinn var réttur af. 
 „Þetta var stór aðgerð, ég er enn þá að ná mér. Mér var illt í fætinum. En svefninn minn var bara svolítið venjulegur fyrstu vikurnar. Ég tók parkódín til að draga úr mestu óþægindunum. Og þegar mér var illt og það var að trufla mig þá minntist ég þess þegar ég var í menntaskóla og hafði fengið paper cut, skorið mig á blað. Mér var ógeðslega illt í puttanum og einn félagi minn var með lækningu við þessu. Nú? Hver er lækningin? Hann sagði: „Einbeittu þér að sársaukanum. Hugsaðu um sársaukann. Virkilega reyndu að finna fyrir honum og fókusa á hann.” Þetta meikar engan sens! En ég prófaði þetta. Og þeim mun meira sem þú reynir að fókus á sársaukann þeim mun minni áhrif hefur sársaukinn á þig. Þetta á ekki við um allan sársauka. En öll svona minniháttar óþægindi eins og beinbrot til dæmis. Ég meina, hællinn á mér var sagaður af mér! Þetta er ekki eitthvað næs. En þegar þetta var óþægilegt, bara einbeita mér að því, bara fókusa á hælinn. Mér fannst þetta hjálpa.“

sofumsaman.is

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Sofum samanBy sofumsaman.is