Söguskoðun

Söguskoðun

By Söguskoðun hlaðvarpLeisureHistory
Download on the App Store

Söguskoðun episodes

  • 131 - Deild 731: Sýklavopnaþróun og læknisfræðitilraunir Japana í seinni heimsstyrjöld

    Í tilefni Hrekkjavökunnar ræða Ólafur og Andri um Deild 731 sem var sýklavopnarannsóknarstöð Japanska hersins í Mansjúríu í seinni heimsstyrjöld. Þar voru framkvæmdar ógeðfeldar læknisfræðilegar tilraunir á föngum og þróuð sýkla- og efnavopn til notkunar í hernaði.

    Sumar lýsingar í þættinum eru ekki fyrir viðkvæma.

    Fórnarlömb tilrauna læknana í Deild 731 eru talin um þrjú þúsund manns, og þaðan komst enginn af lifandi. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 21 min
  • 130 - Hollywood og upphaf kvikmyndaiðnaðarins

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um upphaf kvikmyndaiðnaðarins í Hollywood á fyrri helmingi 20. aldar.

    Kvikmyndaiðnaðurinn í Bandaríkjunum sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á menningarsenu Vesturlanda á 20. öld hófst á Austurströndinni. Upp úr 1920 tók California við sem miðstöð iðnaðarins og Hollywood breyttist úr litlu sveitaþorpi í blómstrandi kvikmyndamiðstöð. 

    Fyrstu kvikmyndamógúlarnir voru utangarðsmenn sem sáu tækifæri í iðnaði sem ekki þótti í fyrstu nógu fínn fyrir yfirstéttina á Austurströndinni. Stúdíóin sem þeir byggðu upp á fyrri hluta 20. aldar í Hollywood eru flest ennþá til undir nöfnum sem flestir þekkja.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 27 min
  • 129 - Sjálfstæðisbarátta Íslendinga og sjálfstæði Íslands

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga sem var áratuglangt ferli þjóðríkismyndunar á Íslandi sem endaði með lýðveldisstofnuninni 1944.

    Sjálfstæðisbaráttan er eitt af stóru málunum í íslenskri sagnfræði og mikilvægur hluti af nútímasögu Íslands. Öldum saman voru Íslendingar tryggir þegnar danska konungsins en á fyrri helmingi 19. aldar breiddist íslensk þjóðernishyggja eins og eldur í sinu og pólitískt líf varð til í landinu.

    Þjóðríkismyndun á Íslandi var langur ferill sem tók heila öld frá því fyrsta skrefið var tekið með stofnun Alþingis 1845 þar til sambandinu við Dani var endanlega rofið 1944, enda hélst hún hönd í hönd við vaxandi efnahagslegt og félagslegt sjálfstæði þjóðarinnar sem tók tíma að byggja upp. 

    Hin einstaklega friðsamlega og löglega sjálfstæðisbarátta Íslendinga var þáttur í uppbroti danska alríkisins, sem var á sama tíma að þróast úr fjölþjóðlegu samsettu konungsríki í hin ýmsu þjóðríki. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 46 min
  • 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um andstæður norður- og suðurríkja Bandaríkjanna sem gerðu vart um sig þegar leið á 19. öldina þar til uppúr sauð og  borgarastyrjöld braust út.

    Bandaríkin voru á 19. öld að þróast úr sambandi ungra ríkja í stórveldi og á sama tíma jókst munurinn á samfélagi og efnahagslífi norðursins og suðursins. Í Suðurríkjunum varð mannaflsfrek bómullarframleiðsla undirstaða efnahagslífsins, á meðan iðnvæðing, innflutningur og fólksfjölgun einkenndu norðurríkin.

    Þrælahaldið varð sífellt stærra deilumál innan Bandaríkjanna og ágreiningur stóð um hvort leyfa ætti það í nýjum fylkjum eftir því sem Bandaríkin þöndust út í villta vestrið. Mismunandi sýn norðursins og suðursins á frelsi og hlutverk alríkisins, ólík efnahagsmódel og menningarmunur leiddu loks til þess að suðurríkin klufu sig út úr sambandinu.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 29 min
  • 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?

    Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um rússnesku borgarastyrjöldina sem skók Rússland árin 1917–1922 eftir byltingu bolsévika, og skoða sérstaklega þann hóp sem lét í minni pokann í styrjöldinni, þ.e. hvítliða.

    Hvítliðar voru ósamstæður hópur keisarasinna, lýðveldissinna, sósíalista og þjóðernishópa sem áttu fátt sameiginlegt annað en að vilja koma bolsévikum frá völdum eftir byltinguna í október 1917. Herir hvítliða voru dreifðir á jaðrinum í kringum kjarnasvæði Rússlands og lutu lauslega yfirstjórn Kolchacks aðmíráls sem stjórnaði her hvítliða í Síberíu. Þjóðernishópar risu upp hvarvetna í hinu uppflosnaða keisaradæmi og börðust fyrir sjálfstæði sínu, og Vesturveldin og Japanir sendu hermenn og hergögn til að styðja við hvítliða og verja egin hagsmuni. 

    Á meðal hvítliða komu einnig við sögu minni stríðsherrar og bandítar. Sérkennilegastur þeirra var baróninn Roman von Ungern-Sternberg sem færði borgarastyrjöldina út fyrir landamæri Rússlands með einkaleiðangri sínum til að frelsa Mongóla undan Kínverjum og koma á laggirnar Mið-Asísku stórveldi sem sem myndi kollvarpa bæði bolsévisma og frjálslyndi. 

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 59 min
  • 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca.

    Hannibal er einn þekktasti herforingi fornaldarinnar og varð ódauðlegur í minni Rómverja fyrir herför sína frá Spáni til Ítalíu. Hann fór yfir Alpana með stríðsfíla og fjölmennan innrásarher og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum gegn Rómverjum á Ítalíu. Þrátt fyrir hernaðarsnilli sína og glæsilega sigra tókst honum þó aldrei að hertaka Róm. Að lokum færðu Rómverjar stríðið til Afríku og sigruðu Karþagómenn.

    Púnversku stríðin þrjú voru átök tveggja stórvelda sitt hvorum megin við Miðjarðarhafið um yfirráð á svæðinu. Eftir endanlegan sigur Rómverja árið 146 f.Kr., þegar Karþagó var lögð í eyði, stóð ekkert annað veldi jafnfætis Róm. Hefði Hannibal tekist að hertaka borgina má færa sterk rök fyrir því að saga Miðjarðarhafsheimsins hefði orðið allt önnur.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 45 min
  • 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugmyndina um réttlátt stríð, sem er í dag einn af hornsteinum alþjóðakerfisins en á sér heimspekilegar rætur allt aftur til fornaldar.

    Frá Aristótelesi til Ágústínusar veltu spekingar fyrir sér hvenær réttlætanlegt væri að hefja stríð og hvernig ætti að haga sér í stríði. Þær hugmyndir sem mótuðust í fornöld og á miðöldum innan vestrænnar heimspeki þróuðust síðar í nútímalegar hugmyndir um mannréttindi og stríðslög, og um það hvenær stríð teljast lögleg eða ólögleg.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 35 min
  • 124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?

    Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um raunsæisstefnuna í alþjóðastjórnmálafræði sem greiningartæki til að skilja sögulega hegðun ríkja.

    Ólafur las bókina How States Think: The Rationality of Foreign Policy eftir John Mearsheimer og Sebastian Rosato og segir frá nálgun þeirra við að skilja ákvarðanatöku ríkja með gleraugum raunsæisstefnunnar.

    Mearsheimer hefur verið mikið í umræðunni vegna þeirra miklu sögulegu breytinga í heimsmálunum sem nú hafa verið að ganga í garð, en raunsæið er ásamt frjálslyndisstefnunni annar helsti skóli alþjóðastjórnmálafræði á 20. öld og heimspekilegur grunnur hennar nær aftur til fornaldar.



    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 28 min
  • 123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um biskupssetrið Skálholt sem var um sjö aldir einn helsti höfuðstaður landsins.

    Biskupsstóllinn í Skálholti var stofnaður árið 1056, skömmu eftir kristnitökuna á Íslandi. Skálholt varð miðstöð kirkjulegs valds og þróaðist jafnframt í auðugt stórbýli sem safnaði miklum eignum og varð eitt helsta mennta- og lærdómssetur landsins. Á blómaskeiði Skálholts á 13. öld bjuggu þar tugir manna og má segja að þar hafi verið vísir að þéttbýli.

    Undir lok 18. aldar færðist stjórnsýsla og áhrifavald í vaxandi mæli til Reykjavíkur, og árið 1801 voru biskupsstólarnir í Skálholti og á Hólum lagðir niður. Þá mátti hinn forni höfuðstaður muna fífil sinn fegurri.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 7 min
  • 122 - Danmörk-Noregur: Staða Noregs í Aldinborgararíkinu

    Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um stöðu Noregs í danska konungsríkinu fyrir 1814.

    Danska konungsríkið, sem Ísland var hluti af, var fjölþjóðlegt og samsett konungsríki. Ríkið var stóð saman af Danmörku - með nýlendum sínum, Noregi - ásamt hjálendunum Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, og hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi. 

    Noregur og Danmörk gengu í eina sæng á miðöldum og frá 1537 var Noregi stjórnað beint frá Kaupmannahöfn. Með Kílarsamningnum 1814 var Noregur svo færður frá Danmörku til Svíþjóðar frekar skyndilega eftir ósigur Dana í Napóleonsstyrjöldunum.

    Þrátt fyrir oft hvassa orðræðu norskra þjóðernissinna um "nóttina löngu" 1537-1814 var samband Dana og Norðmanna mjög náið. Ólíkt hjálendunum og nýlendunum var Noregur miðlægur hluti danska Aldinborgarríkisins, enda var samruni fornu konungsríkjanna tveggja langt kominn þegar skilnaðurinn átti sér stað 1814.

    Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
    Soguskodun.com | [email protected]
    Einnig á Facebook og Youtube.
    Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.

    1 hr 25 min

About Söguskoðun

From the publisher's feed

Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum. 

More shows like Söguskoðun

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners