Sprengja sem sprakk á Ási í Fellum árið 1946 kostaði fjögur mannslíf. Talið er að sprengjan hafi verið skilin eftir af breska hernámsliðinu. Mikið var fjallað um atburðinn í fjölmiðlum í nokkrar vikur en svo fjaraði umræðan út og um leið krafan um sprengjuleit þrátt fyrir að þess væru mörg dæmi að ósprungin skothylki fyndust í Norður-Múlasýslu síðan breski herinn var þar við skotæfingar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.