Sign up to save your podcasts
Or

Sprotasólin er sjálfstæð þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Gestur Sprotasólarinnar að þessu sinni er Halldór Snær Kristjánsson sem er forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Myrkur Games. Halldór var bara 11 ára þegar að hann ákvað að hann vildi starfa við það að búa til tölvuleiki. Í dag stýrir hann fjörtíu manna tölvuleikjafyrirtæki. Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði þegar að stofnendur þess voru í námi við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum kemur meðal annars fram að tölvuleikjafyrirtæki á Íslandi eru hátt í tuttugu talsins. Rætt er um sprotafyrirtæki, tölvuleiki, stöðu Íslands í tölvuleikjabransanum og vöntun á fólki með menntun sem nýtist í þessum bransa.
Í Sprotasólinni er rætt við fulltrúa sprotafyrirtækja sem eiga rætur í HR, en alls hafa liðlega sextíu nýsköpunarfyrirtæki sprottið upp úr lokaverkefnum nemenda og/eða rannsóknum starfsfólks frá stofnun HR árið 1998. Það er einmitt í takti við þá stefnu skólans að vera öflugur nýsköpunarháskóli.
Þáttastjórnendur Sprotasólarinnar eru Lilja Björk Hauksdóttir og María Ólafsdóttir.
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptasvið HR sem er umsjónaraðili hlaðvarpsins ([email protected]). Framleiðendur HR hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.
By Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik UniversitySprotasólin er sjálfstæð þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Gestur Sprotasólarinnar að þessu sinni er Halldór Snær Kristjánsson sem er forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Myrkur Games. Halldór var bara 11 ára þegar að hann ákvað að hann vildi starfa við það að búa til tölvuleiki. Í dag stýrir hann fjörtíu manna tölvuleikjafyrirtæki. Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði þegar að stofnendur þess voru í námi við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum kemur meðal annars fram að tölvuleikjafyrirtæki á Íslandi eru hátt í tuttugu talsins. Rætt er um sprotafyrirtæki, tölvuleiki, stöðu Íslands í tölvuleikjabransanum og vöntun á fólki með menntun sem nýtist í þessum bransa.