Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Stefáns Harðar Grímssonar skálds, en hann fæddist 31. mars 1919 og dó 2002. Leikin er tónlist sem samin hefur verið við ljóð Stefáns Harðar eða undir áhrifum frá þeim og er þar af nógu að taka, einkum hafa kvæðin úr ljóðabókinni „Svartálfadansi“ orðið tónskáldum hugstæð. Meðal annars verður flutt tónlist eftir Jón Ásgeirsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Nordal og Hauk Tómasson. Einnig verða fluttar hljóðritanir af lestri skáldsins á tveimur ljóðum sínum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.