Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Eiríkur Hjálmarsson úr bréfi Vilhjálms Ingvarssonar trésmiðs sem hann skrifar frænda sínum og fósturföður, Finni Jónssyni á Kjörseyri 3. nóvember 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.