Stjörnuspekiskólinn

Stjörnuspekiskólinn

By Gísli Hrafn GunnarssonEducation
Download on the App Store

Stjörnuspekiskólinn episodes

  • 39. þáttur - Ás nautsins og sporðdrekans

    Í þessum þætti fer ég ögn betur yfir hvernig þessar andstæður í stjörnumerkjunum virka og hvernig er hægt að nýta sér þær til þess að dýpka skilning sinn á merkjunum sem og öllu faginu. Ég tek ögn steingeitar og krabba ásinn fyrir en aðalefni þáttarins er nauts og sporðdreka ásinn.

    48 min
  • 38. þáttur -Kompás þátturinn og lífið í kjölfarið

    Ég fann köllun til að segja frá minni hlið eftir að hafa verið tekinn fyrir í Kompás í maí 2022, hérna á mínum vettvangi/podcasti fyrir ykkur hlustendum mínum, því þetta markaði gífurlega mína vegferð sem stjörnuspekingur en einnig í lífinu almennt. Ég tók þennan þátt upphaflega upp í apríl 2026 en eftir að Sölvi Tryggvason vildi fá okkur Elínu konuna mína til sín í podcastið sitt þá ákvað ég að bíða með að birta þetta þangað til eftir að það hafi verið gefið út.

    Ég er þarna í miðri vinnu við að setja upp úthornalista þannig það eru allskyns aukahljóð í upptökunni.

    1 hr 22 min
  • 35. þáttur - Fyrsta viðtalið

    Fyrsta viðtal stjörnuspekiskólans leit dagsins ljós þar sem Aðalheiður Sigursveinsdóttir bauðst til að mæta og ræða upplifun sína af því að mæta í stólinn og spegla masculin og feminin partana innra með sér. Ég fékk upptökubúnað lánaðan sem ég kunni ekki almennilega á og því eru hljóðgæðin töluvert verri en ég hefði viljað en engu að sýður þá vona ég að þið munið hafa gaman af.

    1 hr 34 min
  • 34. þáttur - Orka vatnsberans

    Í þessum þætti tala ég ítarlega um orku vatnsberans en í upphafi þáttarins kynni ég hlustendur fyrir retreati sem verður núna helgina 23.-26. október á skálholtsbúðum.


    Ef áhugi er á að bóka hjá mér einkatíma þá getið þið fundið tíma hér:

    https://noona.is/gislihrafn

    1 hr 8 min
  • 33. þáttur - Tvö stjörnukort

    Í þessum þætti tek ég fyrir uppgvötun mína á því að við séum ekki með einungis eitt stjörnukort heldur tvö, og að þessi tvö stjörnukort eru orkukort fyrir þá tvo einstaklinga sem eru innra með okkur. Í flestum tilvikum er samruni þessara beggja einstaklinga nánast algjör en í sumra tilvikum er þessi aðgreining mjög skýr. Í þættinum fjalla ég um þessa uppgvötun og leiðina að því að ná þessum tveimur pörtum í mér í samskipti og að lokum samvinnu.


    Hægt er að bóka hjá mér tíma í gegnum Noona:

    https://noona.is/gislihrafn

    1 hr 13 min
  • 32. þáttur - Stjörnukort Íslands

    Í þessum þætti fer ég yfir stjörnukort Íslands, 17. júní 1944 kl. 14:00 á Þingvöllum.


    Fyrir ykkur sem viljið sjá mynd af stjörnukortinu þá getið þið farið inná facebook síðu Stjörnuspekiskólans eða einfaldlega flett því upp.

    54 min

About Stjörnuspekiskólinn

From the publisher's feed

Í þessu podcast mun ég kenna stjörnuspeki. Stjörnuspekin er margslungið fag en mjög aðgengileg ef maður lærir hana í stigum og leggur grunninn vel. Ég ætla því að fara vel og vandlega yfir þá…