
Sign up to save your podcasts
Or


Síðasti þáttur fyrstu seríu er tekinn upp í eldhúsinu heima hjá Chrissie að baka sörur saman ♡ Vá hvað fyrsta serían var skemmtileg með ykkur, takk fyrir falleg skilaboð og mikið pepp, alveg ómetanlegt! Þátturinn er í boði okkar uppáhalds Lindex.
Arna & Chrissie fóru yfir hvernig Thanksgiving verður háttað í ár. Chrissie kom með snilldar ráð hvernig á að elda hinn fullkomna kalkún en stöllurnar ræddu einnig klassískt meðlæti með Thanksgiving máltíðinni! Þátturinn er í boði Lindex.
Arna & Chrissie tóku gott "catch up" spjall eftir heimkomu Örnu frá Bandaríkjunum og vinnutörn hjá Chrissie. Þær ræddu skemmtilegar hefðir og hugmyndir að komandi hefðum ásamt því að taka bæði gott og hræðilegt Smakk! Þátturinn er í boði Lindex.
AFSAKIÐ HLÉ! Því miður klúðraðist hljóðið í þættinum og er ekki í bestu gæðum. Þáttur dagsins er skemmtilegur spurningarþáttur og vangaveltur um mat í USA! Arna er á leið í frí og ætlar heldur betur að taka smakkið úti. Þær vinkonurnar drógu einnig sigurvegara úr Lindex gjafaleiknum sem er nú formlega lokið í samstarfi við okkar uppáhalds Lindex.
Í þættinum koma skemmtilegar fréttir frá Lindex! Vinkonurnar fóru svo yfir upphaf samfélagsmiðla í formi MSN, MySpace og hlóu yfir bæði fyndnum og ógeðslegum hlutum á Chatroulette og Snapchat.
Arna & Chrissie tóku djúpa umræðu um meðvirkni. Þær rifjuðu upp grunninn að meðvirkninni sinni og hvað þær hafa gert til þess að yfirstíga hana. Þátturinn er í boði Lindex, haustlínan er mætt í allri sinni dýrð!
Þátturinn er í boði Lindex. Arna & Chrissie tóku smakkið í öllu sínu veldi auk þess að ræða personal shopper þjónustu Lindex! Stöllurnar deildu vægast sagt undarlegum sögum frá herbergisfélögum sem þær hafa lent á í gengum tíðina.
Þáttur 15 er í boði Lindex!
Arna & Chrissie fóru yfir gamla tíma og óheilbrigð samskipti sem þær hafa tæklað í lífinu. Þær ræddu einnig hvernig uppbyggileg sambönd og rétta fólkið getur hvatt okkur öll til dáða.
Þáttur 14 er í boði Lindex.
Vinkonurnar ræddu upplifanir sínar af heimafæðingum og muninn á því að fæða barn nr 2 eftir fyrstu fæðingu. Chrissie sá um smakkið í öllu sínu veldi og Arna lýsti upplifun sinni af sinni fyrstu fæðingu sem hún fylgdist með.
Þátturinn er í boði Lindex! Arna & Chrissie tóku saman fyrstu fæðingarsögurnar sínar og upplifunina að koma frumburðunum í heiminn. Þær fóru einnig yfir viðburðaríka daga og ræddu rekstrarlok Örnu ásamt mikilvægi þess að fylgja hjartanu.