Í þættinum er forvitnast um eðlisfræðiskenninguna strengjafræði og farið í ýmsar áttir út frá henni með sérstakri áherslu á samband raunvísinda og heimspeki. Rætt er við Lárus Thorlacius, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, Finn Dellsén doktor í heimspeki og doktorsnemann Nönnu Hlín Halldórsdóttur.
Heimurinn er ekki einn heldur margur í þeim skilningi að hægt er að skilja og skilgreina hann á ýmsa vegu. Heimur raunvísinda og heimspeki er ekki endilega sá sami og mismunandi trúarbrögð sjá veröldina, tilurð hennar og tilvist með mismunandi augum.
Umsjón: Magnús Örn Sigurðsson.