Geta Íslendingar ekki talað saman? Íslensk samfélagsumræða hefur markast særindum og biturleika eftir átök hrunáranna. Líða þessir strengir í þjóðarlíkamanum hjá eða er ástandið varanlegt? Rætt er um samfélagsumræðuna og íslenska umræðuhefð við Jónu Hrönn Bolladóttur, prest, Atla Rúnar Halldórsson fjölmiðlamann og ráðgjafa og heimspekingana Salvöru Nordal og Vilhjálm Árnason.
Umsjón: Hallgrímur Thorsteinsson.