Sigurður Jefferson var að klára sálfræði í Háskólanum í Reykjavík, en samhliða náminu spilaði hann handbolta með HK í Olís deildinni og æfði amerískan fótbolta. Sigurður hafði aldrei stefnt neitt sérstaklega að sálfræði og tók ákvörðunina kvöldið sem hann skráði sig, en eftir því sem hann lærði meira jókst áhuginn. Í dag finnst honum námið hjálpa sér á mörgum vígstöðvum í lífinu, og þá sérstaklega í íþróttunum, sem hafa alltaf verið númer eitt.