17. Nóvember
Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
Þessa viku fengum við eitt nýtt íslenskt lag en það er eftir hljómsveitina Amabadama með lagið Dágóða stund. Við fengum eitt erlent lag inn á listann en það er samstarf þeirra Diplo og Ellie Goulding en þau njóta aðstoðar rapparans Swae Lee á laginu Close to me.
Þriðja sæti fer til þeirra Lady Gaga og Bradley Cooper með lagið Shallow, annað sætið tekur Jónas Sig með Dansiði og nýtt toppsæti listans fer að þessu sinni til Magna & Svartfells með lagið Á augabragði.