R1918

Þetta er nú ein vitfirringin


Listen Later

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Eðvald Einar Stefánsson uppeldisfræðingur hefur mikinn áhuga á tónlist, hann syngur í kór og spilar á trommur og mandólín. Hann skrifar einnig ljóð og nýtur þess að fara í langar gönguferðir. Í þessum þætti les hann úr bréfi Guðmundar Magnússonar, eða Jóns Trausta, prentara og rithöfundar til Dr. Sigfúsar Blöndal bókavarðar og orðabókaritstjóra. Guðmundur lést úr spænsku veikinni í nóvember 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

R1918By RÚV