Fríhöfnin

Þjóðarlíkaminn : Glímukóngurinn


Listen Later

Í níunda þætti hugmyndasögu fullveldisins sem líta má á sem sjálfstætt framhald fyrsta þáttar, Þjóðarlíkaminn: Líkami konungsins, er fjallað um gullöld glímunnar í ljósi kenninga frönsku heimspekinganna Michel Foucault og Gilles Deleuze um ögunar- og stýringarsamfélög. Þessi hugtök varpa ljósi á hinar ýmsu birtingarmyndir valds í samfélaginu, sem margar hverjar standa utan við og jafnvel í andstöðu við fullveldi ríkisins.
Rætt er við Björn Þorsteinsson heimspeking, Guðmund Hálfdánarson sagnfræðing, Kristínu Loftsdóttur mannfræðing, Nönnu Hlín Halldórsdóttur heimspeking og Valdimar Hafstein þjóðfræðing.
Umsjón: Marteinn Sindri Jónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV