
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem áttu stóran þátt í því að móta íslenskt atvinnulíf kreppur, höft og pólitískt mótlæti, hvernig iðnaðarfyrirtæki þurftu að stunda leynilega lánastarfsemi og margt fleira. Einnig er rætt um það hvort og þá hvernig þessi saga rímar við nútímann, um hættuna á nýjum höftum, mikilvægi frjálsra viðskipta og þess að réttarríkið standi undir nafni. Þá ræðum við einnig um önnur samfélagsmál, bæði hér á landi og á meginlandi Evrópu.
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí formannsins í Asíu og hrókeringar í nefndarsetum á vegum flokksins. Þá er fjallað um óeirðirnar í Frakklandi sem sumir vilja bara kalla saklaus stúdentamótmæli, mögulega rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara, leka á trúnaðarupplýsingum sem Rúv hefur þó aldrei heyrt um og margt fleira. Þá eru fastir liðir að sjálfsögðu á sínum stað – hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Jón Gnarr mætir í ítarlegt og persónulegt kaffispjall um pólitíska vegferð sína og hugmyndafræði. Jón rýnir í ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, svarar spurningum um það hvort að flokkurinn sé yfir höfuð frjálslyndur nema að nafninu til, hvað felist í því að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir það sem á undan er gengið og öðru sem snýr að starfi flokksins. Þá er rætt um nýlegar greinar hans þar sem kallað er eftir auknu frelsi í samfélaginu, skort á stuðningi við þau verkefni sem hann hefur lagt áherslu á, beitingu húmors í stjórnmálum, forsetaframboð, slaufunarmenningu og margt fleira.
Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, nýjar traustmælingar á stjórnmálamönnum, innihaldslausan aðgerðalista ríkisstjórnarinnar, viðvaranir forystumanna í ferðaþjónustu vegna skattahækkana, horfur á lækkun vaxta, komandi loðnuvertíð og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar Hafró og möguleg áhrif hennar á hagkerfið, hik í sjávarútvegi til að fjárfesta í kjölfar skattahækkunar í fyrra, stöðuna á hlutabréfamarkaði eins og hún blasir við núna, hvernig horfurnar kunna að vera með nýjum félögum á markað og fleira.
Stefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar hugmyndir um leigubremsu, fyrirsjáanlegan taprekstur hjá ríkinu, baráttuna við Fjölmiðlanefnd og margt annað. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, viðmælendur stíga á svið, hraðaspurningar og bókameðmæli.
Björn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og öryggismála á Norður-Atlantshafi, og rýnum í væntanlega bók Björns þar sem hann greinir aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ESB-umræðuna í heild sinni og áhrif hennar á íslensk stjórnmál. Sjónum er einnig beint að brothættri stöðu ríkisstjórnarinnar í kjölfar atkvæðagreiðslunnar. Björn rifjar upp fyrri ummæli sín um að Flokkur fólksins uppfylli ekki skilyrði sem alvöru stjórnmálaflokkur og metur þá þróun sem orðið hefur. Að lokum er slegið á sögulega strengi þegar farið er yfir leiðtogafund Reagans og Gorbatsjevs í Höfða, en í vikunni eru liðin 40 ár frá þeim sögulega viðburði sem Björn fylgdist náið með sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með sveitarstjórnarmönnum, nýjan Þjóðarpúls og það hvort að einhver sé að hlaupa með vinningskeflið í stjórnmálum þessa dagana, komandi vetur sem kann að verða þungur í efnahagslegu tilliti, ræðu utanríkisráðherra á allsherjarþingi SÞ, kosningastjóra á launum hjá utanríkisráðuneytinu og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar og hraðaspurningar, auk þess sem viðmælendur stíga á svið með eigin málefni.
Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um stöðu sjálfstætt starfandi verktaka hjá fyrirtækinu. Þá er einnig rætt um tæknihliðina á starfsemi Wolt, hvað skýrir vinsældir þeirra þjónustu sem fyrirtækið býður upp á, áhrif á veitingastaði, hvernig heimsendingum kann að verða háttað í framtíðinni og margt annað.
Hildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin innan stjórnarliðsins og innanhússskilaboð sem minna helst á House of Cards. Velt er upp þeirri kenningu hvort breytingar séu í vændum á ríkisstjórnarsamstarfinu, farið er yfir verkföll hálaunastétta, vaxandi atvinnuleysi og svartsýni í íslensku atvinnulífi. Einnig er rætt um tilefni og tilgang funda sem utanríkis- og forsætisráðherrar sækja nú erlendis, úrillan fjármálaráðherra, stöðu fjölmiðla og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, viðmælendur reima á sig skó og stíga á svið, skoða mögulega ferðafélaga, mæla með bókum og svara hraðaspurningum.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

469 Listeners

139 Listeners

21 Listeners

131 Listeners

27 Listeners

17 Listeners

6 Listeners

70 Listeners

29 Listeners

20 Listeners

36 Listeners

13 Listeners

7 Listeners

27 Listeners

12 Listeners