Þorbjörg Þorvaldsdóttir hefur verið formaður Samtakanna '78 síðan 2019 en hún er tvíkynhneigð og hefur verið með konunni sinni frá átján ára aldri. Vegna þeirra langa sambands draga margir þá ályktun að Þorbjörg sé lesbía en hún segir að tví- og pankynhneigðu fólki sé oft mætt af skilningsleysi. Margir virðist telja að tví- og pankynhneigðir séu lauslátari, ótrúir mökum sínum eða viti einfaldlega ekki hvað þeir vilji.
Í þættinum eru þessi málefni rædd en jafnframt er farið víðan völl um stöðu hinsegin fólks á Íslandi í dag og hverjar helstu áskoranir Samtakanna '78 séu árið 2021.