Fjallað er um kvikmyndaleikstjórann Grím Hákonarson.
Grímur hefur leikstýrt stuttmyndum, heimildarmyndum og tveimur kvikmyndum í fullri lengd. Síðasta kvikmynd Gríms, Hrútar, hefur sópað að sér verðlaunum undanfarið ár og vakið verðskuldaða athygli á alþjóðlegum vettvangi. Sigurganga myndarinnar hófst á kvikmyndahátíðinni í Cannes á síðasta ári þegar hún vann til Un Certain Regard verðlaunana.
Umsjón: Vera Sölvadóttir.
(Frá 2016)