Fyrsti þáttur af fjórum um íslenskar kvikmyndagerðarkonur.
Hversvegna drepa konur? Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri hefur leitað svara við þessu í áraraðir og ræðst nú í upptökur á kvikmynd um þetta umfjöllunarefni. Forvitnast er um hugðarefni Kristínar og hæðir og lægðir á litríkum leikstjóraferli hennar.
Umsjón: Þóra Tómasdóttir.