Í þættinum er fjallað um íslenska leikritaútgáfu og leikrit til lestrar. Rætt er við Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur myndlistarmann og leikskáld, Þorvald Kristinsson ritstjóra og rithöfund, Hafliða Arngrímsson leikstjóra og dramatúrg, Margréti Árnadóttur leikkonu og bókasafnsfræðing, Illuga Jökulsson rithöfund, Bryndísi Loftsdóttur leikkonu og bókaunnanda og Vilborgu Valgarðsdóttur framkvæmdastjóra.
Umsjón: Viðar Eggertsson.
(Frá 2015)