Í þættinum er rætt við Íslendinga sem hafa búið í Sýrlandi, og Sýrlendinga sem hafa búið á Íslandi um lengri eða skemmri tíma. Í þessum síðari hluta er litið á dekkri hliðar sýrlensks samfélags og rætur borgarastyrjaldarinnar, fólksflóttann frá Sýrlandi og hvernig daglegt líf er í dag, fyrir þá sem enn búa í Sýrlandi.
Lesarar: Atli Freyr Steinþórsson og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
Umsjón: Vera Illugadóttir.
(Frá 2015)