
Sign up to save your podcasts
Or


Auður fékk til sín Huldu Margréti Eggertsdóttur til að ræða BA verkefni hennar og Erlu Kolbrúnardóttur frá því í vor 2026 en það hlaut viðurkenningu Þroskahjálpar sem framúrskarandi hagnýtt lokaverkefni. En það fjallar um stöðu einhverfra einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda og aðkomu þroskaþjálfa.
Verkefninu fylgir jafnframt hlaðvarp þar sem viðmælendur varpa ljósi á reynslu og áskoranir í þessum málaflokki, sem gerir niðurstöðurnar enn aðgengilegri og undirstrikar hagnýtt gildi verkefnisins. Hlaðvarpið þeirra heitir "ef við myndum hanna heiminn fyrir fatlað fólk, þá myndi hann henta öllum".
Þroskaþjálfarnir Ragnhildur Jónsdóttir eða Ranka og Sara Kristjánsdóttir komu í viðtal til Auðar og ræddu lokaverkefni sitt "Valnámskeið um einhverfu - Um einhverfu frá einhverfum". Verkefnið þeirra hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi lokaverkefni í þroskaþjálfafræði árið 2025. Þær Ranka og Sara sóttu innblásturinn í hugmyndafræðina Ekkert um okkur án okkar og miðar að inngildandi og skynseginvænni kennsluháttum innan háskólakerfisins.
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk til sín þroskaþjálfana Friðrik Sigurðsson, Sunnu Líf Kristjánsdóttur og Særúnu Ósk Böðvarsdóttur til að ræða starfsheitið á stéttinni. Þráðurinn var tekinn upp frá afmælisþingi félagsins sem haldið var 2. október 2025.
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk loks til sýn systurnar Salóme, Hildi og Þóru Þórisdætur. Allar eru þær þroskaþjálfar og fáum við að heyra söguna af hverju þær urðu þroskaþjálfar og margt fleira. Ætli þær tali eingöngu um þroskaþjálfun þegar þær hittast? Við sem þekkjum þær systur vitum að þær búa yfir mikilli visku og aldrei er lognmolla í kringum þær. Ef ykkur langar að fá vitneskju um hvernig þú getur notað rúðuþurrkuna í nýrri merkingu þá er þetta þátturinn. Njótið vel!
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk til sín þroskaþjálfana Katarzyna „Kasia“ Beata Kubiś, Helgu Andrésdóttur og Herdísi Ingibjörgu A. Svansdóttur í samtal um málefni barna af erlendum uppruna. Þær starfa hjá Þroskahjálp, Ráðgjafar- og greiningarstöðinni og leikskóla Hjallastefnunnar í Reykjanesbæ og hafa allar starfað með börnum af erlendum uppruna og fjölskyldum þeirra.
Þroskaþjálfinn Þórunn Skúladóttir samdi stef þáttarins og vann hún það í OverTune.
Auður Björk fékk til sín þroskaþjálfana Sigrúnu Broddadóttur (ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks) Bjarghildi Pálsdóttur (forstöðuþroskaþjálfa) og Sólborgu Baldursdóttur (forstöðuþroskaþjálfa). Kveikjan að umræðuefninu er samtal Auðar og Bjarghildar á fræðsludögum um þjónustu við aldrað fatlað fólk. Auður Björk hefur ekki starfað með þessum hópi og kom henni mikið á óvart hvað þjónustan breytist við það að verða öldruð. Því er ekki aftur snúið og þema þáttarins er öldrunarmál!
Auður Björk Kvaran, hlaðvarpsstjóri fékk Önnu Björk Sverrisdóttur þroskaþjálfa og doktor og lektor við HÍ, Hrönn Erlingsdóttur , þroskaþjálfa í framhaldsskóla og Þórunni Guðrúnu Einarsdóttur, þroskaþjálfa í grunnskóla á unglingastigi í samtal um framhaldsskólamál.
Í fyrsta þætti, fær Auður Björk Kvaran þroskaþjálfi og hlaðvarpsstjóri ÞÍ, samtal við Laufeyju Elísabetu Gissurardóttur, formann ÞÍ og Jóhönnu Margréti Einarsdóttur þroskaþjálfa og fulltrúa fagráðs sem og afmælisnefndar ÞÍ í tilefni 60 ára afmælis félagsins. Í þættinum verða fræðsludagarnir gerðir upp.
Þroskaþjálfinn er í mótun og á eftir að gera ýmsar breytingar á komandi þáttum, eins og að setja tónlist hlaðvarpsins og slíkt. En það á ekki að koma að sök að hlusta á fyrsta þátt Þroskaþjálfans, góða skemmtun!
From the publisher's feed
Hlaðvarp á vegum Þroskaþjálfafélags Íslands. ÞÍ er fag- og stéttarfélag þroskaþjálfa. Tilgangurinn með hlaðvarpinu er að varpa ljósi á starfshætti, starfsumhverfi og ólík störf þroskaþjálfa.…