Á tónsviðinu

Þuríður Pálsdóttir


Listen Later

Fjallað verður um söngkonuna Þuríði Pálsdóttur sem lést 12. ágúst. sl. Þuríður var sópransöngkona, hún fæddist í Reykjavík 1927 og stundaði söngnám á Ítalíu. Hún var ein merkasta söngkona Íslands á seinni hluta 20. aldar og fór með aðalhlutverk í mörgum óperum sem fluttar voru hér á landi, svo sem „Töfraflautunni“ eftir Mozart 1956 og „Don Pasquale“ eftir Donizetti 1960. Einnig lagði hún mikla rækt við íslensk sönglög og frumflutti meðal annars sönglög eftir föður sinn, Pál Ísólfsson, og frænku sína, Jórunni Viðar. Þá kenndi Þuríður söng áratugum saman. Fluttar verða hljóðritanir með söng Þuríðar frá ýmsum tímum og einnig brot úr útvarpsviðtölum við hana. Lesarar eru Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV