Þvottahúsið

Þvottahúsið#87 Guðmundur Arngríms klagar sveitta kúreka


Listen Later

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur, helluhvíslari, möndluristari og formaður Samtaka leigjenda.

Guðmundur sem sjálfur er á leigumarkaði hefur sett sig á bólakaf í þessi mál með aukinni eftir eftirspurn á einskonar regluverki utan um rétt leigutaka og rými leigusalans.

Guðmundur nefnir í því samhengi þræl skipulagt og skilvirkt kerfi leigumála í öðrum löndum eins og Danmerku, Noregi, og Finnlandi svo eitthvað sé nefnt. Í raun í flestum nágrannalöndum, Evropulöndum er einskonar kerfi eða regluverk sem heldur utan um þessi mál og skilar fyrir vikið af sér heilbrigðum og vel funkerandi leigumarkaði bæði fyrir salan og takan.

Guðmundur vill meina að á  Íslandi ríkir hálfgerð kúrekastemning þar sem lög hvað varðar rými til hækkunar á leigu er gal opið til túlkunar leigusalanum í vil. Leiguverð hefur hækkað gríðarlega sem margir vilja meina að sé í engu samræmi við þróun í nágrannaríkjum sem og að forsendur hins frjálsa markaðar séu allt aðrar víða erlendis í þessum málum. 

Guðmundur talar um að hlutfall þeirra á leigumarkaði hafi hækkað gríðarlega síðustu ár og að við séum hægt og rólega að færa okkur meira og meira úr því að kaupa okkur fasteignir yfir í leigumarkaðinn sem hefur ekki upp á mikið að bjóða hér á Íslandi. Leigusalan er búin að færast úr höndum margra einkaaðila yfir í fjársterk fasteignafélög ýmis í einkaeigu eða í eigu hluthafa og þar geti félögin nánast stýrt sínum hækkunum sökum nauðar fólks á fasteignamarkaði. Lítið sem ekkert er til af eignum á almennri sölu og í því samhengi hefur fasteignarverð rokið upp úr öllu valdi síðustu ár og nánast ógjörningur er fyrir ungt fólk í dag að kaupa sér 2-3 herbergja íbúð nema að standa með minnst 15 milljóna króna útborgun sem fæstir hafa möguleika á að afla sér.

Því fari fólk út á leigumarkað og með tímanum eftir því sem fólk eldist á leigumarkaði festist fólk þar og á sér enga möguleika á hvorki að kaupa sér íbúð né koma sér í örugga leigu þar sem afborganir eru í einhverju samræmi við hvað íbúðareigendur eru að borga oftast í afborganir á sínum húsnæðislánum. 

https://www.leigjendasamtokin.is



...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

ÞvottahúsiðBy Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt

  • 5
  • 5
  • 5
  • 5
  • 5

5

1 ratings


More shows like Þvottahúsið

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

224 Listeners

FM957 by FM957

FM957

31 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

29 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

25 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners