Þvottahúsið

Þvottahúsið#88 Haraldur Erlendsson lítur á sannleikan brögðum ofar


Listen Later

Nýjasti gestur bræðarana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en geðlæknirinn og nýkosin deildarforseti Guðspekifélagsins á Íslandi Haraldur Erlendsson.

Haraldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóls Íslands og starfaði á Borgarspítalnum á endurhæfingar og taugadeild og svo á lyfjadeild. Hann tók nám í taugalækningum í London (DCN). Haraldur starfaði í nær fimm ár við heilsugæslu á landsbyggðinni og var læknir á Flateyri þegar snjófljóðin féllu 1995. Þá byrjaði hann að vinna með fólk með áfallastreitu og í framhaldi af því lærði geðlækningar í Bretlandi og kláraði sérfræðiprófin 1999 og mastersnám 2000. Hann starfaði sem sérfræðingur í geðlækningum í Sussex í East Grinstead og síðar í Hastings. Hann byrjaði svo að starfa með konur með mikla áfallastreitu og jaðarpersónuleikaröskun í 10 ár Þá var hann yfirlæknir í Cygnet Hospital Bierley í Bradford og síðar geðlæknir í Dean Hospital hjá Partnership in Care. Árið 2012 flutti hann heim til Íslands og tók við sem yfirlæknir og forstjóri á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði ásamt því að gegna stöðu sem yfirlæknir geðheilsuteymis Suðurlands á Selfossi í nokkur ár. Hann lét svo af störfum þar 2019 og hóf stofurekstur fyrst í Hveragerði og síðar í Kópavogi.

Nýverið var Haraldur kosin deildarstjóri Guðspekifelagsins. Guðspekifélagið er félagsskapur karla og kvenna sem leita sannleikans í gegnum hin ýmsu form trúarbragða og kennisetninga. Guðspekifélaganum er ekki sama hvernig heimurinn er. Hann er í senn áhorfandi og þátttakandi. Hann vill skoða mannlífið, einkum mannshugann, eiga þátt í myndun jákvæðra viðhorfa, því samkvæmt guðspekinni eru allir menn fyrst og fremst menn þrátt fyrir ýmsa meira eða minna tilbúnar skiptingar. Enginn einn getur skorast undan hlutdeild sinni í ábyrgð heildarinnar – af því hann lítur á bræðralagið sem staðreynd. Einkennisorð Guðspekifélagsins eru “Engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri”.

https://lifspekifelagid.is

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

ÞvottahúsiðBy Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt

  • 5
  • 5
  • 5
  • 5
  • 5

5

1 ratings


More shows like Þvottahúsið

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

80 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

4 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Jákastið by Tal

Jákastið

0 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners