Þvottahúsið

Þvottahúsið#91 Villimey og Margrét sjá um neyslurýmið Ylja


Listen Later

Nýjustu gestir bræðranna Gunnars og Davíðs Wííum eru þær Villimey Líf Friðriksdóttir og Margrét Dís Yeoman. Villimey Líf sem er þroskaþjálfi og Margrét Dís sem er hjúkrunarfræðingur starfa að tilraunaverkefni á vegum Rauða krossins í málaflokk skaðaminnkunar í formi neyslurýmis sem ber heitið Ylja. 

Neyslurýmið Ylja er úrræði þar sem þau sem nota vímuefni geti komið og notað efnin í öruggu rými undir leiðsögn frá heilbrigðismenntaðra aðila. Með þessu er reynt að koma í veg fyrir hættu á ofskömmtun sem og sýkingum sem algengar eru í þessum bransa.

 Ylja er færanlegt neyslurými og er fyrsta neyslurýmið sem opnar á Íslandi. Rýmið er í gamla bíl Frú Ragnheiðar sem fengið hefur nýja bifreið til afnota. Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta sprautað ávana- og fíkniefnum í æð undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna. Neyslurými eru starfrækt víða um heim og hafa mikinn samfélagslegan ávinning í för með sér.

Ylja vinnur eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar sem felur í sér að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem hljótast af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja notkunina sjálfa. Villimey Líf og Margrét Dís segja að með því að veita öruggan og hreinan stað til að neyta vímuefna sé hægt að tryggja bætt öryggi til notenda sem og samfélagsins. 

Markmið Ylju eru því að lágmarka þörf einstaklinga til að neyta vímuefna á almannafæri og þannig koma í veg fyrir þann skaða sem vímuefnaneysla í óöruggum aðstæðum getur haft í för með sér. Má þar nefna sýkingar, blóðborna smitsjúkdóma og ofskammtanir. Ylja leggur einnig áherslu á að mynda traust, veita stuðning og viðhalda mannlegri reisn hjá notendum úrræðisins.


...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

ÞvottahúsiðBy Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt

  • 5
  • 5
  • 5
  • 5
  • 5

5

1 ratings


More shows like Þvottahúsið

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

224 Listeners

FM957 by FM957

FM957

31 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

29 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

25 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners