Í fimmta þætti liggur leið okkar til Tíbet. Við fjöllum um hernám Kínverja sem staðið hefur síðan 1950 og kynnumst menningararfi landsins, ekki síst höllunum og hofunum í höfuðborginni Lhasa. Við skoðum líka kerfisbundna eyðingu þessara minja og veltum fyrir okkur hvaða þýðingu hún hefur fyrir menningu og samfélag Tíbeta.
Umsjón: Hilmar Hildar Magnúsarson.
Lesarar í þættinum ásamt Hilmari: Júlía Margrét Einarsdóttir, Kristófer Kvaran og Sigríður Birna Valsdóttir.
Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir.