Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Martha Clara Björnsson garðyrkjufræðingur úr þakkarbréfi til séra Bjarna Jónssonar sem hinir ýmsu góðborgarar Reykjavíkur skrifa undir. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.