Þú veist betur

Tíska


Listen Later

Það er óhætt að segja að það sé ákveðið ástand í gangi á landinu, en við reynum að halda okkar stefnu í Þú veist betur og nú er komið að tísku. Nánar tiltekið fatatísku og hvernig hún hefur þróast í gegnum tíðina. Það mætti segja að við séum að tala um ákveðna hugmyndafræði sem er erfitt að finna einhver nákvæm svör við. Það er til dæmis ólíklegt að þið hlustið á þáttinn og endið með óaðfinnanlegan fatastíl. En þó er líklegt að þið hafið að minnsta kosti betri hugmynd um hvernig þið myndið ykkar eigin fatastíl. Stíl sem er óháður hvað utanaðkomandi aðilar segja ykkur að sé algjörlega málið eða reyna að selja ykkur í gegnum alls kyns auglýsingar eða áhrifavalda. Við erum nefnilega að fikra okkur í átt að jólum, með allskonar tilboðsvikum og fleiru svo það er fínt að fara aðeins yfir þetta allt saman. Til að gera það með okkur fékk ég Rögnu Sigríði Bjarnadóttur til mín og við fórum yfir söguna, mismunandi fatastíla, hvernig hlutir komast í tísku og margt fleira.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Ragna Sigríður Bjarnadóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Þú veist beturBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

3 ratings


More shows like Þú veist betur

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Tvíhöfði by tvihofdi

Tvíhöfði

6 Listeners