Á tónsviðinu

Tónlist eftir Emile Mayer


Listen Later

Í þættinum verður flutt tónlist eftir Emilie Mayer sem fæddist í Friedland í Þýskalandi árið 1812 og lést 1883. Hún var mikilvirt tónskáld og samdi meðal annars sjö strengjakvartetta og átta sinfóníur þótt það væri algengt viðhorf á 19. öld að konur réðu alls ekki við svo stór form. Fluttur verður 1. kafli úr sinfóníu nr. 4 í h-moll eftir Emilie Mayer og Faust-forleikur hennar ópus 46. Einnig verða flutt sönglög eftir hana, þar á meðal lag við hið fræga ljóð Goethes: „Álfakóngurinn“. Til samanburðar verða einnig flutt lög eftir Franz Schubert og Carl Loewe við sama ljóð, en Loewe var tónsmiðakennari Emilie Mayer. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV