Á tónsviðinu

Tónlist sem snýst um bernskuár Jesú


Listen Later

Frásögn Biblíunnar af fæðingu Jesú þekkja flestir, en hins vegar gefur Biblían afar litlar upplýsingar um bernskuár Jesú. Snemma fóru hins vegar að myndast sögur um bernsku Jesú, helgisagnir og þjóðkvæði, og síðarmeir jafnvel skáldskapur eftir nafngreinda höfunda. Í þættinum í dag verður flutt tónlist sem snýst um bernskuár Jesú. Þar má nefna enska þjóðlagið „Cherry Tree Carol" þar sem Jesús talar úr móðurkviði, hollenska þjóðlagið „Jesuken en Janneken" sem lýsir leik Jesú litla við Jóa litla, þ.e.a.s. Jóhannes sem síðar var nefndur Jóhannes skírari, og kafla úr óratóríunni „Bernska Krists" eftir Hector Berlioz. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV