Í þættinum verður leikin tónlist sem tengist aprílmánuði. Þar má nefna aprílþáttinn úr píanóverkinu „Árið“ eftir Fanny Mendelssohn-Hensel, „Vorkvæði“ eftir Jón Leifs, sönglagið „Zitronenfalter im April“ eftir Hugo Wolf og „Chanson d´avril“ eftir Georges Bizet. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.