Í þættinum verður leikin tónlist sem tengist tröllum og jötnum íslenskri þjóðtrú. Þar á meðal eru tveir „Tröllaslagir", annar eftir Þorkel Sigurbjörnsson og hinn eftir Jón Ásgeirsson. Einnig má nefna lagið „Ingjaldur í skinnfeldi" eftir Árna Thorsteinson, en það er samið við kvæði sem tröllkonan Hetta fer með í íslensku fornsögunni „Bárðar sögu Snæfellsáss". Þá verður fluttur kafli úr óratóríunni „Edda I" eftir Jón Leifs og klarínettukonsertinn „Búkolla" eftir Þorkel Sigurbjörnsson, en heiti konsertsins vísar til þjóðsögunnar um kúna Búkollu sem þurfti að bjarga úr tröllahöndum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.